Hvernig reiknum við verðið?

Skýringar og dæmi um verð á sandblástursfilmum.

Stærð filmunnar

Við reiknum flatarmál út frá endanlegri breidd og hæð filmunnar. Breidd × hæð í sentímetrum, deilt með 10.000, gefur stærðina í fermetrum.

Dæmi: 100 × 50 cm = 0,5 m². Notaðu mál filmunnar eftir að spássía hefur verið dregin frá glermálinu.

Sjá mælingar og ferlið

Hvað hefur áhrif á verðið?

Verð fer eftir flatarmáli, fjölda filma, uppsetningu og því hvort pantað er í almenna formið eða Filmuhönnuðinn.

  • Án uppsetningar: 19.000 kr. á m².
  • Með uppsetningu: 17.000 kr. á m² og 6.375 kr. fyrir hverja filmu.
  • Almenna pöntunarformið: 5.000 kr. grunngjald á pöntun.
  • Viðbætur í almenna forminu: 500 kr. fyrir hvert nafn, 1.500 kr. fyrir götuheiti/húsnúmer eða textalínu og 1.500 kr. fyrir mynstur á hverri filmu.

Í Filmuhönnuðinum seturðu hönnunina upp sjálf/ur. Þar bætast hvorki grunngjald né gjöld fyrir mynstur, nöfn og texta við filmuverðið.

Þegar uppsetning er valin eru akstur, þrif á gleri, uppsetning og frágangur innifalin samkvæmt núverandi verðútreikningi. Flókin sérhönnun og sérstakar aðstæður eru metnar sérstaklega.

Dæmi: ein filma, 100 × 50 cm

Ein einföld filma án mynsturs eða texta, samtals 0,5 m². Enginn magnafsláttur.

PöntunarleiðÁn uppsetningarMeð uppsetningu
Almennt pöntunarform
Filmuhönnuður

Í almenna forminu bætast til dæmis 1.500 kr. við ef þessi filma fær mynstur.

Afsláttur af pöntun

1.500 kr. dragast frá heildarverði filmupöntunar einu sinni, óháð fjölda filma. Afslátturinn er að hámarki verð pöntunarinnar.

Filma sem er yfir 150 cm á aðra hvora hlið kostar að lágmarki 40.000 kr. eftir afslætti. Miðað er við endanleg filmumál eftir spássíu.

Magnafsláttur

8% afsláttur reiknast af filmuverði þegar pantaðar eru að minnsta kosti 5 filmur og samanlagt flatarmál er 4 m² eða meira. Báðum skilyrðum þarf að ná. Grunngjald og viðbótargjöld fá ekki afslátt.

Aðrar filmur og merkingar

Fyrir sólarfilmur, bílamerkingar og skilta- og gluggamerkingar förum við yfir stærðir, efni, hönnun og aðstæður og gerum tilboð.

Öll dæmi sýna áætlað verð. Endanlegt verð er staðfest eftir yfirferð beiðninnar.

Fá verð í verkefniðOpna Filmuhönnuð